Forvarnir, heilsa og vinnuvernd  
Þjónusta forvarnasviðs Heilsuverndar stuðlar að auknu heilbrigði einstaklinga, gæðum og öryggi vinnustaða. Meginmarkmið þjónustunnar er að koma á skipulögðu innra vinnuverndarstarfi hjá viðskiptavinum og efla þekkingu og nýja hugsun hjá stjórnendum og starfsmönnum um heilsu- og vinnuverndarmál. Markmið vinnuverndarstarfs er að sérhverjum starfsmanni líði vel í vinnunni og að hver og einn fari ávallt heill heim frá vinnu

Þjónstuþættir Heilsuverndar:

  • Heilbrigðisráðgjöf
  • Vinnuvernd
  • Símaráðgjöf

Fyrirtæki með öflugt innra starf:

  • Skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði/áhættumat er til staðar og unnið kerfisbundið samkvæmt henni
  • Öryggisnefnd, öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður eru til staðar
  • Vinnuslys, óhöpp og hættutilvik eru skráð og greind og nýtt í forvarnaskyni
  • Starfsmenn fá viðeigandi þjálfun og leiðbeiningar, skráning
  • Fyrirliggjandi eru leiðbeiningar og verklagsreglur um notkun varasamra efna og tækja
  • Reglubundið eftirlit er með vélum og tækjum, skráningar
  • Reglulegar skoðunarferðir um fyrirtækið og öryggisþættir rýndir
  • Tillit er tekið til vinnuumhverfissjónarmiða við hönnun og skipulagningu
  • Utanaðkomandi aðilar eru upplýstir um kröfur fyrirtækisins m.t.t. vinnuaðstæðna og heilsuverndar
  • Fulltrúi yfirstjórnenda er með í öryggisnefndinni
  • Fyrirtækið aflar utanaðkomandi aðstoðar í vinnuverndarstarfinu eftir þörfum
  • Fyrirtækið hefur skýra vinnuumhverfisstefnu

Heilsuvernd getur veitt aðstoð við að stuðla að bættu öryggis-, heilsu- og vinnuverndarstarfi

Hver er tilgangurinn með skipulögðu öryggis- og vinnuverndarstarfi?

  • Góð stjórnun öryggismála felur í sér skipulagða nálgun í daglegri vinnu – framleiðni eykst í kjölfarið.
  • Uppfylla lög, reglur og kröfur
  • Hættur við vinnuna og örugg vinnubrögð eru skilgreind
  • Úrbætur eru greindar og settar í ferli
  • Uppfylltar eru siðferðislegar og samfélagslegar skyldur sem snúa að því að hlúa að starfsmönnunum
  • Starfsmenn geta sjálfir haft áhrif á eigið öryggi og eignast hlut í skipulagningu
  • Ánægður og öruggur starfsmaður er góður starfsmaður.

Nánari upplýsingar fást í síma 510 6500 eða með tölvupósti á netföngin: hv@hv.is eða lilja@hv.is

 

 




Nýjustu fréttir



                Heilsuvernd,  Holtasmára 1 / Kt: 410908-1580 / IS-201 Kópavogur, Iceland / Sími/Tel +354 510 6500 / Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun