|
|
|
|
|
Stefna Heilsuverndar í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum er að:- Hafa öryggis-, heilsu- og umhverfissjónarmið að leiðarljósi í allri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins með stöðugar umbætur í huga.
- Sérhverjum starfsmanni líði vel í vinnunni og fari ávallt heill heim frá vinnu.
- Efla öryggis-, heilsu- og umhverfisvitund Íslendinga.
- Nýta og umgangast auðlindir okkar af virðingu og taka tillit til umhverfisáhrifa s.s. við innkaup á aðföngum og minnkun úrgangs með aukinni endurvinnslu.
- Stuðla að víðtækri og góðri þekkingu og þjálfun starfsmanna sinna um öryggis-, heilsu- og umhverfismál með reglubundinni fræðslu og þjálfun.
- Leggja áherslu á trúnað við starfsmenn og viðskiptavini.
- Fara eftir lagalegum kröfum og öðrum innri og ytri kröfum sem gilda varðandi öryggis-, heilsu- og umhverfismál þar með talin varðveisla og vinnsla persónuupplýsinga.
- Vera í farabroddi fyrirtækja í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum.
Gæðastefna Heilsuverndar er að:- Veita viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu á sviði öryggis-, heilsu- og umhverfismála auk rekstrar með gæði að leiðarljósi.
- Veita faglega þjónustu sem er löguð að þörfum sérhvers viðskiptavinar.
- Uppfylla reglur og lagalegar kröfur stjórnvalda svo sem lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og aðrar kröfur sem fyrirtækið hefur samþykkt að uppfylla.
- Fyrirtækið stuðli að menntun og þjálfun starfsfólks til þess að verða leiðandi á sínu sviði í gæðamálum.
- Fyrirtækið fari að kröfum og bæti stöðugt virkni gæðastjórnunarkerfisins.
|