Læknamóttaka  

Læknamóttaka Heilsuverndar er opin frá kl. 9-12 og 14-18 alla virka daga. Hægt er að bóka tíma í læknamóttökuna í gegnum síma eða á vefsíðu okkar www.hv.is eða www.doktor.is undir tenglinum Læknisþjónusta.

Þar er í boði lækna og hjúkrunarþjónusta við öllum almennum veikindum og minniháttar áverkum.

Hægt er að panta tíma í læknamóttöku í síma 510-6500 alla daga frá kl.09:00-17:00 en einnig er um opna móttöku að ræða þar sem einstaklingar geta komið ef um heilsufarsvandamál er að ræða án tímabókunar. Þó er mælst til þess að bóka tíma.

Markmið okkar er að mæta eftirspurn og þörfum einstaklinga og fyrirtækja sem vilja bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, snögga afgreiðslu á heilbrigðisvandamálum og góða og faglega læknisþjónustu.

Við viljum:

  • Bæta aðgengi, stytta biðtíma
  • Stuðla að snemmbæru inngripi og greiningu sem dregur úr tímalengd veikinda
  • Draga úr kostnaði starfsmanna og atvinnurekanda vegna vinnutaps tengt veikindum eða minniháttar vinnuslysum
  • Vísa á viðeigandi sérhæfða heilbrigðisþjónustu þegar við á og tryggja þannig bestu mögulegu þjónustu sem völ er á
  • Verð á dagtíma er 2200 kr. en 2500 kr. utan dagvinnu.

Staðsetning: Holtasmári 1, 201 Kópavogi

Ef óskað ef eftir frekari upplýsingum þá vinsamlegast hafið samband við starfsfólk læknamóttökunnar í síma 510 6500, eða á netfangið hv@hv.is

 

 





                Heilsuvernd,  Holtasmára 1 / Kt: 410908-1580 / IS-201 Kópavogur, Iceland / Sími/Tel +354 510 6500 / Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun