Námskeið  

Heilsuvernd býður upp á fyrirlestra og námskeið á sviði vinnu- og heilsuverndar, sem hægt er að sníða að þörfum viðskiptavinarins.

Markmið með námskeiðunum er að efla vitund og þekkingu á vinnuumhverfismálum og heilbrigði. Þátttakendur þekki helstu áhættuþætti út frá sjónarmiðum heilsu, vellíðan, öryggi og umhverfi, geti metið áhættu og haft áhrif til að breyta vinnuumhverfi sínu.

Námskeiðin geta t.d. verið út frá ákveðnum hópi starfsmanna t.d. stjórnendur, skrifstofufólk, ungir starfsmenn, starfsmenn á byggingarvinnustað eða í jarðvinnu eða út frá ákveðnum öryggisþáttum á vinnustað eða lífsstíl.

Heilsuvernd er einnig í samstarfi við Þekkingarmiðlun þar sem námskeið okkar standa viðskiptavinum Þekkingarmiðlunar til boða.

Vinsælustu námskeiðin eru:

  • Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og –verði
  • Einelti á vinnustað
  • Heilsa og vellíðan
  • Líkamsbeiting við skjávinnu
  • Skyndihjálp
  • Slökun með einbeitingu
  • Stjórnun fjarvista
  • Streita
  • 10 öryggisatriði á vinnustað
  • Áhættumat, ábyrgð og skyldur

Einnig bjóðum við upp á fyrirlestra og kynningarfundi t.d. í tengslum við heilsu- eða öryggisátak innan fyrirtækja, hvort tveggja fyrir stjórnendur sem og aðra starfsmenn. Þar er einkum rætt gildi þess að vinna markvisst að öryggi og heilbrigði á vinnustað sem og ábyrgð og skyldur fyrirtækisins og starfsmanna.

Dæmi um önnur námskeið Heilsuverndar:

  • Vellíðan í vinnunni
  • Reykleysisnámskeið
  • Öryggismál og öryggishegðun
  • Öryggisstjórnun verktaka
  • Notkun slökkvitækja
  • Neyðarstjórnun og neyðaráætlanir
  • Umhverfismál og úrgangsstjórnun
  • Ýmis sérhæfðari öryggisnámskeið t.d. lokuð rými, heit vinna/logaleyfi, öryggisrofar og læsingar, fallvarnir

Leiðbeinendur Heilsuverndar hafa fjölbreytta reynslu á sínum sviðum og er skilyrði að þeir vinni af fagmennsku og virðingu gagnvart þátttakendum. Upplýsingar um leiðbeinendur má finna hér.

Nánari upplýsingar um kennsluskrána og -fyrirkomulag í síma 510 6500 alla virka daga.
Einnig er hægt að hafa samband okkur með því að senda tölvupóst á netfangið hv@hv.is




Nýjustu fréttir



                Heilsuvernd,  Holtasmára 1 / Kt: 410908-1580 / IS-201 Kópavogur, Iceland / Sími/Tel +354 510 6500 / Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun