Stjórnandi
Elísabet Reynisdóttir
Næringarfræðingur
Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.
Næring og heildræn nálgun í heilsueflingu á vinnustöðum
Fróðlegur og skemmtilegur fyrirlestur þar sem fókusinn er á að virkja áhuga um heilsueflingu og vellíðan. Fjallað er m.a. um næringu út frá ýmsum pólum; samspili heilsu og mataræðis, tískubylgjum, næringu og lífsstíl, vítamínum og samsetningu fæðu.
Rétt næring veitir orku og vellíðan – og aukna starfsánægju!
Fróðlegur og skemmtilegur fyrirlestur þar sem fjallað er m.a. um þá þætti sem hafa áhrif á heilsuna okkar. Hverjir eru þessir þættir og hvað þarf til að virkja áhugahvötina um heilsueflingu og vellíðan einstaklinga á vinnumarkaði?
Elísabet talar um næringu út frá ýmsum pólum; samspil heilsu og mataræðis, tískubylgjur, næring og lífsstíll, vítamín og samsetning fæðu. Einnig verður komið inn á mögulegar lausnir og aðferðir sem hægt er að beita í forvarnaskyni til að minnka líkur á langvinnum sjúkdómum.
Ávinningurinn er heilbrigðari vinnustaður, ánægðara starfsfólk og betri árangur í starfi!
Lengd
45 mín.